Vopn og aftur vopn!

Er það eina sem hægt er að fá út út Bandaríkjamönnum. Geta þeir ekki hugsað um neitt nema stríð og stríðsrekstur.
mbl.is Bandaríkin útvega bandamönnum sínum vopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varnir Íslands

Þá er það komið á hreint. Við verðum varin 4 sinnum á ári. síðan er bara að mynna árásarlöndin á að koma þegar þoturnar eru til staðar. Ég fíla mig svo miklu öruggari núna en allt þetta sumar þegar engin her hefur verið á landinu. Loksins get ég farið að líta til himins aftur og staðið með stolti og sagt: Sjáið þarna kemur verndarinn.

En aftur á móti þá hef ég ekki séð annað en að aðal ógnin sem að okkur steðjar utanlands frá kemur með farþegaflugi og flutningaskipum til landsins. En það er eitjurlifja- og glæpaógnin og væri nær að eiða meira fé í að berjast á móti þeirri vá heldur en ýminduðum hernaðaróvinum.

Þessar varnir myntu mig á löggæsluna í Garðabæ áður en löggæslu höfuðborgarsvæðisins var slegið saman í eitt. Þá var það svo að lögreglustöð Garðabæjar var opinn á milli 0800 og 1600. Þá voru allir afbrotamenn beðnir vinsamlega að haga ferðum sínum samkvæmt opnunartíma, enda var þetta hinn rólegasti bær og lítið af handtökum. Núna er maður farinn að sjá lögreglu á sveimi þarna á næturnar líka og þá fer nú sjálfsagt að kárna gamanið.

En annars, setjum meiri varnir í tollgæslu en hernað. Þar getum við uppskorið mest af arfa þjóðfélagsins.


mbl.is NATO ákveður eftirlit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

40þúsund á einu tjaldsvæði

Og ég get lofað að þarna verður engin verslunarmannastemming, og öll tjöldin koma heim að loknu móti. Það verður engin tjaldbrenna á mótinu þó það verði varðeldur og kveikt bál.
mbl.is Yfir 40 þúsund skátar samankomnir í Englandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veðrið í haust!

Aldrei þessu vant er ekki hægt að kenna ríkinu um þær tafir sem orðið hafa á afhendingu malbiks. Það verðum bara  að vona að haustið verði hagstætt til malbikunarframkvæmda svo a hægt verði að loka holunum undan nagladekkjum fyrir veturinn. Það er ómögulegt að þurf að búa til holur í ónýtt malbik.

Svo verðum við að af í huga, fyrir næsta vetur, að það sem aldrei hefur gerst áður getur alltaf gerst aftur.


mbl.is Tugmilljóna tjón vegna tafa á malbikunarframkvæmdum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það væri frábært.

Það væri alveg frábært að það gengju strætisvagnar á milli þessara stoppistöðva.
mbl.is Fyrsta strætóstöðin nefnd „Verzló"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klukk

Ég var klukkaður af bloggvini mínu, honum Þorsteinn Ingimarsson  og veð að reyna að standa við þær óskir sem þar koma fram: Sega frá 8 atriðum um mig sjálfan. Nú stóð aldrei til að ég notaði þennan vetfang til að tala um sjálfan mig. Heldur ætlaði ég a tjá skoðanir mínar á þessum vetfangi. Við skulum sjá til hvernig mér tekst þetta, að segja frá mér án þess að segja svo mikið.

  1.  Ég er fæddur í Reykjavík og ólst upp í Kleppsholtinu til 8 ára aldurs.
  2.  Flutti þá í Kópavoginn og var þar tll ég kynntist konunni minni. Ber ennþá hug til þess   sveitarfélags.
  3. Lærði bátasmíði hjá fyrirtæki sem hét Bátanaust. Það er að sjálfsögðu hætt eins og önnur fyrirtæki í þessum geira.
  4. Þar eftir lærði ég bifvélavirkjun og síðan tæknifræði við skóla í Þrándheimi í Noregi.
  5. Kom heim aftur og vann þá 3 ár hjá Siglingamálastofnun.
  6. Eignaðist þá tvö yndisleg börn
  7. Flutti aftur til Noregs ásamt konu og börnum og vann þar við bátasmíðar og kælitækni í samtals 9 ár.
  8. Komum aftur til landsins þá einu barni ríkari og búum nú í einum af stærri svefnbæjum höfuðborgarsvæðisins.

Nú fer ég af stað og klukka aðra bloggara og vona að eitthvað komi út úr því.


Virkjun íslendinga fyrir íslendinga

É var að fá fréttaskeyti Landverndar inn á tölvuna mína nú fyrir helgi og er þar merkileg frétt um Múlavirkjun á Snæfellsnesi. Sú virkjun fékk að far í gegn án umhverfismats vegna ástæðna sem koma fram í fréttinni.

Þessi framkvæmd minnir mig svolítið á ástandi eins og það var í Kópavogi þegar bærinn var að taka sín fyrstu skref. Hús voru byggð eftir einhverri teikningu sem alltaf var lágmörkuð vegna þess að það var aldrei farið eftir þeim nema sem grunnmynd og það var enginn látinn rífa.

Múlavirkjun verði lagfærð
19. júlí 2007 - Landvernd
Mulavirkjun
Á myndinni má sjá að árfarvegur neðan stíflunnar er nánast þurr í fyrrihluta júlí mánaðar en rennsli ætti, skv. því sem til stóð, að vera 30-40% af eðlilegu rennsli þessa árstíma.

Landvernd hefur sent bygginganefnd Eyja- og Miklaholtshrepps erindi vegna Múlavirkjunar. Með erindinu er þess krafist að virkjunin lagfærð til samræmis við þau gögn sem lágu til grundvallar ákvörðun Skipulagsstofnunar um að virkjunin skyldi ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Þann 7. nóvember 2003 tók Skipulagsstofnun ákvörðun um að Múlavirkjun skyldi ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Með því að byggja umfangsmeiri virkjun en til stóð hefur bæði verið brotið á skipulags- og byggingalögum sem og lögum um mat á umhverfisáhrifum. Stíflan var byggð hærri en til stóð skv. þeim gögnum sem lögð voru fyrir Skipulagsstofnun og eru umhverfisáhrif meiri en gengið var út frá þegar ákvörðunin var tekin. Af þessum sökum er hætt við því að virkjunin valdi tjóni á lífríki Straumfjarðarár sem og lífríki Baulárvallavatns. Vatnsborði Baulárvallavatns hefur verið lyft umtalsvert með framkvæmdinni og ekkert náttúrulegt rennsli er nú í Straumfjarðará á milli vatnsins og lónsins við stífluna.

Bygginganefnd ætti að vera fullkomlega ljóst að lög hafa verið brotin enda hefur Skipulagsstofnun sent nefndinni bréf þar sem frávik frá þeim gögnum sem lágu til grundvallar ákvörðun stofnunarinnar eru tíunduð.


Vinstri myndin er tekin við stífluna og hægri myndin aðeins ofar í landinu. Myndirnar sýna að inntakslónið nær alla leið að Baulárvallavatni, sem þar með er orðið að stóru „inntakslóni“. Hér hefur augljóslega verið brotið gegn ákvörðun Skipulagsstofnunar.

Í ákvörðun Skipulagsstofnunar kemur fram að yfirfall á stíflunni verði hannað með aflíðandi halla niður í farveg Straumfjarðarár þannig að lífrænt æti skili sér niður í farveg árinnar. Eins og sjá má á myndinni hér að neðan er yfirfallið ekki í samræmi við þessa lýsingu. Þá má ljóst vera að um yfirfallið fer ekki 30-40 % af rennsli árinnar eins og til stóð skv. þeim gögnum sem lágu til grundvallar.

 Ég hef nú ekki fengið leifi Landverndar til a birta þetta hér en ef þeir hafa eitthvað móti þessu þá lætur vonandi Bergur í sér heyra


Það tók langan tíma þetta.

Það tekur mun styttri tíma að aflífa hval en það tekur að framkvæma samskonar aðgerð undir eftirliti í fangelsum Bandaríkjanna. Ekki það að ég haldi að þetta sé alltaf svona, en eitt skipti er of mikið fyrir utan að dauðarefsing á aldrei rétt á sér.
mbl.is Aftökustoppi lokið í Flórída
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er starfi hermanna?

Drepa hermenn ekki af yfirlögðu ráði eða eru þetta ósjálfráð viðbrögð þegar þeir hleypa af byssum sínum? Mér er bara spurn. Ég þekki ekki hermennsku nógu vel til að svara þessu. Er sem betur fer alveg laus við svona geðveilu.
mbl.is Bandarískir hermenn sakaðir um morð í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamli góði Villi!

Ég kann alltaf svo vel við það sem gamli góði Villi segir. Núna, eins og lesa má í fréttinni, á OR bara að gera það sem þeir kunna best og það er að framleiða rafmagn og annast veitu mál á eins hagkvæman hátt og hægt er. Núna er búið að vera svo hlít að það hlýtur að koma að hækkunum hjá OR eins og fyrir tveimur árum þegar hitaveitan hækkaði vegna þess að það seldist svo lítið vatn um sumarið. Núna er annað svona sumar þar sem selst lítið vatn.

Við skulum nú vona samt að Villi geri nú ekki kröfu um að OR fari útí framleiðslu á heitu og köldu vatni eins og blaðamaðurinn skrifar, því þá mæli ég með að OR láti rigna.

En svo sagði Villi líka þegar hann tók við borgarstjórastólnim að hann vildi að það yrði valkostur a fara á einkabílnum í vinnuna. Ég bíð enn eftir því að það verði staðið við það og að strætó fari að ganga á skikkanlegum tíma, þó ég tali nú ekki um að það verði  gert frítt að auki.


mbl.is OR selur Gagnaveituna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að kolefnisjafna bílinn

Hvernig kolefnisjafnar maður bíl. Ef mér tækist t.d. að kolefnisjafna bílinn minn, sem mér hefur aldrei tekist þrátt fyrir öll þau tré sem ég hef gróðursett, hættir þá bíllinn minn að menga?

Hvað verður þá um allt svifrykið frá honum? Kemur þá ekkert svifryk? Þurfa þeir sem hafa astma þá ekkert að óttast bílinn minn?

Mengar þá olían, sem notuð er til að smyrja vélina á bílnum mínum, ekkert meir?

Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem hafa vaknað hjá mér þegar ég heyri þennan massífa áróður um að kolefnisjafna bíla.

Það er öll önnur mengun og óþægindi sem af bílnum verða. Það eru nefnilega ekki bara þægindi af bílnum. Það eru einnig ótal óþægindi sem af honum hljótast, vegna annarrar mengunar en kolefnismengun. Það er bara brot af allri menguninni.

Ég get ekkert sagt annað en gott um þá gróðursetningu og það fjármagn sem skapast til gróðursteningar með þessu móti. Yfirleitt hefur skógræktarfólk verið að berjast við að ná í fé til að geta komið niður nokkrum hríslum en nú mun þetta sennilega fara að snúast við. Peningana fer að vanta fólk til að koma trjám í jörðina.

Ég mæli með að fólk, sem ekki þarf bráðnausinlega að nota bíl, noti strætó. Það felst sennilega meiri kolefnisjöfnun í því en að gróðursetja tré sem fer að vinn kolefni eftir nokkur ár. Það er kannski betri lausn að kolefnisjafna bílinn, þó ég skilji ekki enn hvernig það er hægt, og noti svo strætó.

Núna eru nefnilega sveitarfélögin sem enn eru ekki farin að gefa frítt í strætó, að spá alvarlega í að gefa okkur sem valkost að nota einkabílinn í vinnuna.

En til að hafa valkost þarf maður að hafa möguleika til að velja á milli. Öðruvísi er það ekki valkostur.


Verðlag alveg eins og búast mátti við!

Hvenær hafa kaupmenn í gegnum tíðina leift okkur neitendum að njóta þess að hægt sé að lækka vöruverð. Ég man ekki eftir einu einasta skipti sem það hefur gerst.

Það eru allir að abbast upp á olíufélögin að þau skuli ekki lækka verðið hjá sér þegar bæði gengi krónunnar styrkist og olían lækkar á heimsmarkaði.

Þetta er alveg það sama með kaupmenn. Það tekur bara lengri tíma að átta sig á því að þeir beita sömu taktík.

Við neitendur þurfum alltaf að svíða fyrir og borga meira.

Það hrósuðu allir Jóhannesi í Bónus þegar hann kom með sína fyrstu lágvöruverslun. Nú er það komið svo að hann ræður verðinu á markaðnum. Það fær enginn að komast undir hann í verðum. Þá undirbýður hann bara í bónusverslununum. Það sást best þegar Nettó byrjaði. Svo rekur hann líka Hagkaup og þar stýrir hann hæsta verðinu.

Hvernig á að vera hægt að keppa við svoleiðis kalla sem taka inn hugsanlegt tap úr einni verslun og rétta það af í annarri sem heitir eitthvað annað. Við skulum hafa það á hreinu að það eru Hagar sem panta inn fyrir báða aðila og þaðan er þessu öllu stýrt.

Ég mynnist þess stundum þegar gengisbrettingin var gerð. Fyrir breytinguna kostaði stokkur af eldspítum 50 kr. Eftir breytinguna kostaði sami stokkur 1 kr. Þá var búið að taka tvö núll af verðlaginu svo að þarna hafði orðið 100% hækkun yfir nótt. og þá sagði enginn neitt frekar en nú.

Við neytendur látum allt yfir okkur ganga og brosum bara af því að það er endalaust verið að telja okkur trú um að við séum að græða svo mikið á því að versla.

 


mbl.is ASÍ: Verðhækkanir á matvöru óviðunandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrós til forsetans!

Hann á hrós skilið fyrir að aka á mengunarminni bíl en þessum gömlu bensínhákum sem forsetaembættið var að reka.

Ólafur Ragnar flottasti þjóðhöfðingi í heimi!


mbl.is Forsetaembættið fær umhverfisvænan bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur munið!

Látið manninn berja ykkur svo að hægt sé að dæma hann fyrir nauðgun.

ÞETTA ER FÁHEYRÐUR DÓMUR OG RÉTTARRÍKINU TIL STÓRKOSTLEGRAR SKAMMAR.


mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er eins gott...

...að þeir stoppi í Kópavogi því Garðbæingar hafa engan möguleika á að hýsa alla þessa ferðamenn.
mbl.is Þúsundir manna á leið í Kópavoginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

6 af 80

Ætli sé víðar pottur brotinn þar sem svona margir erlendir starfsmenn eru að störfum?
mbl.is Iðnréttindi sex Pólverja viðurkennd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þetta einhverjar fréttir!

Það væri frétt ef olíufélögin teldu sig þurfa að lækka verð á olíu og bensíni. Hækkun er farin að verða alveg sjálfsagður hlutur.

Ekki lækkaði N1 verðið hjá sé þó að þeir hefðu sparað 600miljónir á ári á því að skipta um nafn og sleppa við að borga einkaleyfisgjald til Exon fyrir að nota Esso nafnið.


mbl.is Stefnir í hækkun á bensíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dópsamband Íslands II

Mér varð á, um daginn, að stinga fingrinum í vespuból þar sem talað var um að stofnað hafði verið Pókersamban Íslands og ég leifði mér að gagnrýna það á nokkuð hæðinn hátt og ætla ég hér að reyna að svara þeirri gagnrýni sem mér sýnist vera svara verð. Sjá http://bibb.blog.is/blog/bibb/entry/252094/

Það er nú svo gott hér á landi að allir hafa skoðanafrelsi og mega láta í ljós skoðanir sínar svo lengi sem það skemmi ekki æru annars manns og er það meira að segja bundið í stjórnaskrá landsins sem ég ætla að vitna meira í í þessum skrifum mínum.

Baldvin Mar Smárason líkir póker og brids saman. Nú veit ég að í brids er oft spilað upp á peninga en þá þurfa menn að klára heila rúbertu til að fá úr því skorið hver vinnur og eru það allt frá 6 spilum og upp í það að vera heil helgi ef ekki lengur. Svo þar er ólíku saman að jafna þar sem hvert spil í póker er gert upp, svo að kvöldið getur farið í tugi spila og þá geta gríðarlegir peningar skipt um hendur.

Gunnar Jónson sem er með 3ju athugasemd inni á blogginu hjá mér segir að þeir sem vilji þvinga sínum skoðunum upp á fólk séu alveg óþolandi. Nú er því ekki til að dreifa að ég sé að þvinga neinum skoðunum upp á einn né neinn, ég er bara að koma mínum skoðunum á framfæri og það er hver frjáls að lesa þær, og það heitir ekki að þvinga einn né neinn.

Guðmundur Ásgeirsson segir í ath. nr. 10 að það séu stjórnarskrárvarin réttindi að mega leggja líf sitt í rúst. Það væri léleg stjórnarskrá sem leifði það og það komi hvorki honum eða mér við hvort fólk geri slíka hluti. Nú var ég að lesa stjórnarskrána og gat hvergi fundið þennan kafla sem hann heldur fram að þar sé. En þar stendur aftur á móti: 76. gr. [Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika.
Þar kemur það að það er líka okkar mál ef einhver verður háður spilamennsku eða spilafíkill.

Sá sem kemur með ath. nr. 13 hefur greinilega ekki lesi fyrri blogg frá mér, en þar vil ég benda á http://bibb.blog.is/blog/bibb/entry/251039/ sem ég tek fyrir spilakassa og þá þversögn að SÁÁ skuli þurfa að reka spilakassa til að afla sér tekna. En til áréttingar gæti jafnvel verið betra að leifa pókerspil heldur en spiklakassa og þá sé ég alveg eins fyrir mér að SÁÁ geti verið sá aðili sem fengi leifi til að sjá um pókerhallir sér til framdráttar, þar væri þó hægt að hafa þessa gerð spila undir eftirliti fagmanna í fíknum.

Ólafur N Sigurðsson sem gerir ath. nr. 16. Ég er svo hjartanlega sammála honum í hans áliti og vísa ég þar aftur í bloggið mitt hér fyrir ofan.

Í ath. nr. 18 er einhver Toggi sem ekki frekar þorir að láta nafns síns getið talar um eitthvað sem heitir Texas póker. Nú verð ég að viðurkenna að ég er bara svo mikill "hálfviti" eins og Gammurinn segir í ath. semdum sínum, að ég veit ekki hvað það er frábrugðið frá póker almennt. Það eru sjálfsagt til ýmsar gerðir af póker. td. opinn póker, lokaður póker, fata póker og sjálfsagt fleiri tegundir sem ég kann ekki nöfnin á. En það kemur bara ekki fram í fréttinni sem ég gerði ath. við hvernig póker væri um að ræða, enda sjálfsagt skiptir það ekki máli.

Guðmundur nokkur Kristinsson er sá eini sem er eitthvað á móti pókerspili eins og ég og þakka ég honum kærlega fyrir stuðninginn.

Þegar verið er að líkja saman vímuefnum og sagt að vín sé mesti skaðvaldur er ég bara alveg sammála því en það er bara ekki það sem viðkomandi blaðagrein var að fjalla um og er ég alveg viss um að þeir sem nota það sem samlíkingu á gagnrýni mína á pókerspil eru ábyggilega ekki tilbúnir að láta banna það, en einhverstaðar verður vont að vera og mér finnst bara ágætt að dreypa á glasi annað slagið í góðra vina hópi.

Lög um spilamennsku, happadrætti og fjárhættuspil eiga sjálfsagt fullan rétt á að verða endurskoðuð í heild og ef það væri gert kæmi það sjálfsagt upp aftur hvort leifa eigi póker eður ei, en þangað til leifi ég mér með tilvísun í stjórnarskrá Íslands að vera á móti fjárhættuspilum

Stjórnaskrána er hægt að nálgast á slóðinni http://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html

 


Eldheitt fyrirtæki

Þeir ættu kannski að fara að huga að nafnabreytingum á bátunum hjá sér. Við verðum bara að vona að það verði ekki þriðja óhappið hjá þeim.

Gangi þeim annars bara allt í haginn.


mbl.is Eldur um borð í Eldingu II
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Brynjar Hólm Bjarnason

Höfundur

Brynjar Hólm Bjarnason
Brynjar Hólm Bjarnason
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • Tövrafoss

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband