Færsluflokkur: Bloggar
19.9.2007 | 07:16
Nokkuð skemtileg frétt.
Á forsíðu Blaðsins þann 18.09.07 var nokkuð skondin frétt. En þar sagði að efni sem prófað hafði verið á rottur róaði þær. En þegar það var reynt á fólki kom í ljós að það "kitlaði" konur næstum eins og Viagra á að kitlar karla.
Þessi frétt segi mér að rottur og konur eru ekkert líkar, eins og vísindamenn hafa haldið.
Áfram konur, þið eruð alltaf að sanna ykkur meir og meir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 22:11
Íslensk menning, eða þjóðin sem tortímdi fortíðinni.
Það er svolítið skrítið að líta til baka og skoða íslenska sögu í gegnum byggingalist og ég tala nú ekki um atvinnusögu okkar litlu þjóðar.
Ég veit ekki um neina siglingaþjóð sem þurft hefur að leita til annarra landa til að fylla inn í sögu sína um siglingar, aðra en íslendinga. Ekki nóg með það, það sem þeir fengu var sett upp á Garða og þar látið rotna og fúna engum til sóma né ánægju.
Það sem ég á við er báturinn Sigurfari sem keyptur var frá Færeyjum af því að hann var eins og kútterar sem voru notaðir hér á landi og enginn fannst lengur.
Við höfum verið svo blessunarlega lánsöm að hafa rænu á að setja í lög að ekki megi geyma gamlan bát sem ekki hefur verið á fiskveiðum. Okkur tókst að tortíma allri okkar bátasögu á grunnhyggnum lögum frá hinu háa Alþingi. En þar sagði að ef útgerðarmaður fengi nýjan bát varð hann að farga eldri bát í staðin. Ekki mátti selja hann til annarra eða gefa, svo hægt væri að nota þá í öðrum tilgangi en fiskveiðum.
Nú er svo komið að það finnst næstum enginn gamall trébátur hér á landi. Menn þurftu að smíða nýjan bát til að geta varðveitt svo einfaldan hlut sem bátslag sem kallað var Engeyjarlag á bátum. Þegar ég fór að læra bátasmíðar á sínum tíma, fundust hér á landi margir árabátar og trillur með þessu tiltekna lagi, en nú er svo komið að enginn finnst lengur og þetta er bara á rúmum 30árum.
Nú er þessi heillum sér horfin þjóð, farin af stað einn ganginn í viðbót og byrjuð á að tortíma gömlum húsum, vegna þess að eigendurnir vilja ekki halda þeim við og láta þau grotna niður til að geta byggt ný og stærri hús sem reynt verður að telja okkur, sauðsvörtum almúganum, að séu miklu fallegri en þessir gömlu smákofar sem engum kom að gagni lengur.
Þegar rætt er við útlendinga sem koma hingað til landsins finnst þeim miðbær Reykjavíkur mjög sjarmerandi og notalegur þar sem hús eru lág og með miklum karakter. Ekki eins og alstaðar annarstaðar þar sem miðbær höfuðstaða hvolvist yfir og gleypir þann sem þar gengur um borg og götur.
Og enn og aftur tókst borgaryfirvöldum að samþykkja að tortíma sögulegri arfleifð okkar í dag með því að samþykkja niðurrif tveggja gamalla húsa í miðbæ borgarinnar og leifa byggingu háhýsa í staðinn. Þarna fer saga Laugavegar 4-6 í súginn fyrir eitthvað sem á að telja mér trú um að sé miklu flottara en þessi tvö gömlu hús á lóðunum. Svo koma aðrir og byrja allt í einu og byggja hús sem eru eftirlíkingar gamalla sögufrægra húsa og allir verða voða glaðir og dásama þessar eftirlíkingar.
Nei leifum því sem gamalt er líka að standa það er okkar saga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2007 | 07:25
Meira um leggi
Það er er auðskilið að 102. gr. umferðalaga gerir ráð fyrr að ef sakborningur neiti að gefa sýni viljugur á að túlka það sem sekt. Reyndar dulítið skrítið þar sem segir að maður sé saklaus nema annað verði sannað. En sem sagt neitun við að gefa sýni er staðfesting á sekt.
Samkvæmt þessu geta þeir á Selfossi hætt að þvinga þvaglegg upp í bæði karla og konur. Sakborningur verður að sanna sakleisi sitt.
![]() |
Valdbeitingin var fullkomlega óþörf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.8.2007 | 12:06
Skipulag og íbúar
Það er svolítið merkilegt að fylgjast með þeim umræðum sem orðið hafa í sveitarfélögum undanfarna mánuði um skipulagsmál. Maður hefur það alltaf meir og meir á tilfinningunni að íbúar séu eitthvað fyrirbæri sem er orðið fyrir sveitastjórnum til að láta drauma sína rætast í þróun byggðar. Það er farið að líta svo út að sveitafélög séu eitthvað fyrir byggingaraðila ekki þá sem búa fyrir á stöðunum .
Í Kópavogi kemur þetta einna best fram þar sem Gunnar Birgisson er búinn að ganga með þann draum í maganum lengi að breyta Kópavogshöfn í stórskipahöfn, þó að aðkoma fyrir skip sé engan vegin góð hvorki innsiglingarlega séð né aðstöðulega.
Siglingin inn Skerjafjörðinn hefur aldrei verið talin góð né örugg og varð það til þess að á tímum smábáta lögðu menn frekar upp á Álftarnesi eða í Hafnarfirði heldur en að koma inn til hafnar í Kópavogi þó að höfnin þar hafi yfirleitt verið hagstæðari veðurfarslega en Álftanes.
Nú er það orðið svo að þeir íbúar sem búa á svæðinu þurfa að beita lýðræðislegu afli sínu til að fá stjórnvöld til að líta upp úr sínum draumum og kannski taka tillit til þeirra sem eru fyrir á staðnum og orðnir fyrir á staðnum. Það var svolítið merkilegt að heyra Gunnar Birgisson segja, eftir einn fjölmennasta íbúafund sem haldinn hefur verið í Kópavogi, að það hafi ekki orðið trúnaðarbrestur á milli íbúa og bæjaryfirvalda þegar það liggur fyrir að mikill meirihluti bæjarbúa á Kársnesinu eru á móti bæði stækkun hafnarinnar og fjölgun íbúðarhúsnæðis á svæðinu.
Einnig liggur það fyrir að ekki er hægt að stækka götur meir á Kársnesinu þar sem plássið fyrir göturnar er, því miður, ekki til staðar.
Síðan koma íbúar á Nónhæð í Kópavogi og mótmæla harðlega þeim skipulagsbreytingum sem þar eru fyrirhuguð og skipulögð alfarið af byggingaraðilum en skipulagsyfirvöld koma þar nær ekkert að málum á annan hátt en að reyna að valta yfir íbúa svæðisins.
Á því svæði er til hugmynd á aðalskipulagi hvernig svæðið á að líta út, í grófum dráttum, í framtíðinni en einhverjir byggingaraðilar eru búnir að ákveða að gera eitthvað annað við svæðið og þá er eins og allt sé leyfilegt og íbúarnir aftur orðnir fyrir.
Við svo stórfeldar breytingar sem utanaðkomandi aðilar hafa áhuga á að breyta svæðinu þurfa íbúarnir að kosta stærri skóla, sveri holræsalagnir, meiri vegi og meira ónæði sem búið var að lofa í upphafi að ekki ætti að vera þegar þeir ákváðu að búsetja sig þarna.
Í Mosfellsbæ er eitt svona skipulagsfyrirbrigði líka, þar sem fara á yfir íbúa svæðisins með traktorum, gröfum og vörubílum gegn óskum þeirra sem eru fyrir.
Hvenær ætla sveitastjórnir að átta sig á því að þær eru þjónar íbúanna en ekki íbúarnir þjónar þeirra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2007 | 12:55
Stór brjós
Hafið þið heyrt um manninn sem stóð í sturtunni í Laugardalslaug.
Þegar annar kemur við hlið hans verður þeim fyrri að orði: Át þú við sama vandamál að stríða á þínu heimili eins og ég, að vera með stærstu brjóstin í fjölskyldunni
![]() |
Brjóstastækkun í verðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2007 | 12:15
GSM-væðing landsins
Nú eftir að Síminn var selur og grunnnetið með, illu heilli. Nú er svo komið að einkaaðilar eru komnir í einokunaraðstöðu á sölu aðgangs að grunnneti landsins, þar sem allir sem áhuga hafa á að taka þátt í GSM-samkeppninni verða að fara til eins af keppinautunum og semja við hann um verð á flutningsleiðum.
En eftir að búið var að selja þessa silfurskeið þjóðarinnar var talað um að af hagnaði af sölu Símans væri hægt að fara og klára tengingu landsins inn á GSM-kerfið. Það er sjálfsagt gott og blessað. En það er eitt sem ég fékk aldrei svör við, kannski vegna þess að ég tók ekki nógu vel eftir, eða var það vegna þess að enginn spurði. Þegar búið verður að klára lagningu grunnnetsins um allt land á okkar kostnað, hver á þá að fá það til rekstrar? Ekki getur ríkið komið inn með hluta grunnnetsins og sett það á útleigumarkað og ekki verður það bara látið liggja engum til gagns. Hver fær tekjurnar af því eftir að við eru búin að kosta lagninguna?
Svör óskast!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2007 | 12:42
Bara 4000 manns
![]() |
4.000 manns mættir á þjóðhátíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.8.2007 | 17:36
Minn maður.
![]() |
Forsetinn heimsækir heimsmót skáta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2007 | 18:53
Vopn og aftur vopn!
![]() |
Bandaríkin útvega bandamönnum sínum vopn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2007 | 10:24
Varnir Íslands
Þá er það komið á hreint. Við verðum varin 4 sinnum á ári. síðan er bara að mynna árásarlöndin á að koma þegar þoturnar eru til staðar. Ég fíla mig svo miklu öruggari núna en allt þetta sumar þegar engin her hefur verið á landinu. Loksins get ég farið að líta til himins aftur og staðið með stolti og sagt: Sjáið þarna kemur verndarinn.
En aftur á móti þá hef ég ekki séð annað en að aðal ógnin sem að okkur steðjar utanlands frá kemur með farþegaflugi og flutningaskipum til landsins. En það er eitjurlifja- og glæpaógnin og væri nær að eiða meira fé í að berjast á móti þeirri vá heldur en ýminduðum hernaðaróvinum.
Þessar varnir myntu mig á löggæsluna í Garðabæ áður en löggæslu höfuðborgarsvæðisins var slegið saman í eitt. Þá var það svo að lögreglustöð Garðabæjar var opinn á milli 0800 og 1600. Þá voru allir afbrotamenn beðnir vinsamlega að haga ferðum sínum samkvæmt opnunartíma, enda var þetta hinn rólegasti bær og lítið af handtökum. Núna er maður farinn að sjá lögreglu á sveimi þarna á næturnar líka og þá fer nú sjálfsagt að kárna gamanið.
En annars, setjum meiri varnir í tollgæslu en hernað. Þar getum við uppskorið mest af arfa þjóðfélagsins.
![]() |
NATO ákveður eftirlit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Brynjar Hólm Bjarnason
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugamál
- Veisla fyrir bátaáhugamenn Kystnorge på sit beste
- BB 11 Norsk tréskúta
- Siglingar Siglingablað
- Bátar Tímarit um trébáta
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1071
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar