27.6.2008 | 14:55
Svindl við útsölur
Dóttir mín kom í Smáralindina núna í byrjun vikunnar og sá þar kjól sem henni leist bara alveg prýðilega á. sökum þess að útsölur voru að fara að byrja ákvað hún að bíða með að kaupa kjólinn sem kostaði þá 13000 kr.
Í gær kom hún aftur og ath. með kjólinn. Var hún þá svo heppin að hann var einn af þeim sem voru á útsölunni og var gefinn 30% afsláttur við kassa. En nú brá svo við að grunnverðið sem notað var, var ekki 13000 kr. heldur 15000kr. Semsagt við að fara á útsöluna hafði verðið hækkað um 2000 kr. áður en gefin var af því 30% afsláttur. Þetta kalla ég að SVINDLA Á VIÐSKIPTAVINUM. Það er nefnilega ekki verið að gefa þá 30% eins og lofað er, heldur rétt um 12% af verðinu sem var fyrir útsöluna.
Þegar hún var að bera sig upp við aðra, kom í ljós að þetta var víst ekkert óvenjulegt í þessu húsi, þar sem aðrir gátu komið með álíka sögur.
Það getur vel verið að þetta sé leyfilegt. Ef svo er þá er það allavega siðlaust.
Um bloggið
Brynjar Hólm Bjarnason
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugamál
- Veisla fyrir bátaáhugamenn Kystnorge på sit beste
- BB 11 Norsk tréskúta
- Siglingar Siglingablað
- Bátar Tímarit um trébáta
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.