Trú og trúleysi

Þessi umræða sem átt hefur sér stað undanfarna daga um trú og trúmál finnst mér nokkuð merkileg. Krafa Siðmenntar um að banna alla trúarfræðslu í skólum, banna gjafir á nýja testamentinu og breyta þjóðsöngnum vegna þess að þar er mynnst á guð eru merkilegar.

Kennsla á kristin fræði mega alveg minka í skólum landsins, en við verðum að mynnast þess að vel yfir 80% landsmanna játast kristinni trú. Nú skal það tekið fram að ég er ekki meðlimur í hinni Íslensku kirkju af persónulegum ástæðum en það er ekki þar með sagt að ég hafni trú. ég er alinn upp í kristnu samfélagi með kristin gildi sem grunn. Eitt skulum við líka hafa í huga, að ef við t.d flytjum til lands með önnur trúarbrögð en okkar, þá er gerð sú krafa að við tökum fullt tillit til þeirra aðstæðna. Við hljótum að gera þá kröfu til þeirra sem koma hingað að þeir taki tillit til þeirra aðstæðna sem hér eru.  Þá á ég ekki við að þurfa að skipta um trú, en að við þurfum ekki að snúa við skólakerfi bara vegna þess að hingað komi fólk með önnur trúarbrögð. Við getum að sjálfsögðu bætt inn í kennslu okkar skóla meiru um aðrar trúarsetningar.

Þegar ég var í barnaskóla, eins og það hét þá, fengu þeir frí í tímum þeir sem ekki voru kristnir. Þetta getur einn verið möguleiki í skólum í dag.

Við skulum ekki ggleyma því að þjóðfélagið hér byggist á kristinni grunnsýn og það stendur ekki til að breyta því þó að hingað komi fólk með önnur trúarbrögð. Í þessari grunnsýn felst t.d. umburðarlyndi, náungakærleikur og innan þeirrar gilda getum við vel búið saman hér fólk með mismunandi trúarskoðanir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

en við verðum að mynnast þess að vel yfir 80% landsmanna játast kristinni trú
Nei, þetta er goðsögn. Þú ruglar saman trúfélagaskráningu og viðhorfi.  Um helmingur þjóðarinnar játar kristna trú.
Krafa Siðmenntar um að banna alla trúarfræðslu í skólum

Þú hefur því miður fallið fyrir áróðri Ríkiskirkjunnar, umræðan snýst um trúboð, ekki kennslu. 

Sjá:  Siðmennt er ekki má móti  litlu  jólum eða kristinfræðslu  og satt og logið um stefnu Siðmenntar.

Matthías Ásgeirsson, 6.12.2007 kl. 08:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Hólm Bjarnason

Höfundur

Brynjar Hólm Bjarnason
Brynjar Hólm Bjarnason
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • Tövrafoss

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 943

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband