Færsluflokkur: Bloggar
15.6.2007 | 23:53
Lúpína
Það var hér á árum áður að ég var ansi hrifinn af þessari harðgeru plöntu sem vann jarðveg fyrir aðrar jurtir og lokaði uppblásturssárum á landsbyggðinni. Hún hefur reyndar gert alveg frábæra hluti á söndunum fyrir austan Vík í Mýrdal og núna er verið að nota hana til að græða upp Mývatnssandana sem stöðugt eru búnir eru að vera á hreyfingu. Þar kemur hún ábyggilega til með að gera góða hluti. En það má öllu ofgera.
Ég skal alveg viðurkenna að ég var með í að sá helli í Úlfljótshlíðar fyrir 20 árum. En um síðustu helgi var ég það fyrir austan að slá hana og byrja að halda henni í skefjum. Hún er búin að gera það sem ætlast var til af henni á þeim tíma sem henni var sáð. Og nú er þrautin þyngri að fjarlægja hana.
En ástæðan fyrir þessum skrifum mínum núna er að ég var að keyra um götur Reykjavíkur og þá áttaði ég mig á að það er ekki orðið þverfótandi fyrir lúpínunni innan borgarinnar. Öskjuhlíðin er öll orðin útbíuð í þessari harðgeru plöntu sem nú er á góðri leið með að fjarlægja lyngbreiður sem til voru innan borgarmarkana.
Það er alveg kominn tími til að vinnuskólar höfuðborgarsvæðisins fari að vinna á þessari plöntu sem er að yfirtaka allt sem heitir náttúrulegt íslensk landslag.
Nú er kolviðarsjóðurinn byrjaður að vinna fyrir sér og vona ég að það verið til þess að farið verði að minka og eða hætta notkun lúpínu eins og gert hefur verið.
Það er kannski orðið of seint að reina að berjast á móti þessari plöntu, en það er þá allavega hægt að halda henni frá svæðum þar sem hún hefur ekkert að gera. Það tekur talsverðan tíma að uppræta hana á stöðum sem hún hefur engan rétt á að vera eins og miðhálendi landsins. Það var stórslys þegar einhver tók upp á því að planta henni í Bæjarstaðaskóg, stað sem hún hafði ekkert að gera á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2007 | 19:56
Hrós til bæjarstjórnar Kópavogs
Nýsamþykkt tillaga bæjarstjórnar Kópavogs, um að gefa bæjarbúum frítt í strætó, kemur vonandi skriðu af stað varðandi notkun á strætisvögnum. Þetta er að sjálfsögðu ekki frítt þar sem þetta leggst í staðinn jafnt á alla skattgreiðendur og alla fara að borga í strætó eins og að sjálfsögðu verið hefur. Þetta kemur vonandi til góða varðandi slit á vegum í staðin, þegar bæjarbúar fara að nýta sér vagnana meira slitna vegirnir vonandi minna.
En þar sem ég bý í Garðabæ kemur þetta mér ekki til góða. Garðabær þarf ekki að gera neitt svona fyrir sína íbúa. Það vita allir að það er lágmark 2 bílar við hvert hús hér. Ég og mín ölskylda erum ekki venjulegir Garðbæingar með aðeins einn bíl og tvö reiðhjól fyrir utan dyrnar.
Það skal tekið skýrt fram að þetta er hrós til allrar bæjarstjórnar Kópavogs en ekki bara til Gunnars Goldfingergests. Bæjarstjórnin sýnir mikinn framtaksvilja þarna við að reina að bæta umhverfið og minka útblástursmengun bíla. Svo vonum við að önnur bæjarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafi dug til að svara þessu útspili Kópavogs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2007 | 07:21
Sumarbústaðir!!!
![]() |
Sumarhús stærri og fleiri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2007 | 21:04
Kjalvegur!
Enn og aftur er þessi hugmynd um heilsárs Kjalveg að skjóta upp kollinum og því hefur aðallega verið hampað að það muni stytta leiðina milli Akureyrar og, ef mig minnir rétt, Reykjavíkur um 50 km. Nú er það svo að mikinn hluta þessarar styttingar er hægt að ná á annan og bæði ódýrari og einfaldari hátt.
Til að mynda ef vegurinn er lagður um Blöndudal í staðin fyrir að leggja hann um Blönduós styttist leiðin um einhverja tugi km. Reyndar var sveitastjóri Blönduóss ekkert sérlega hrifin af þessari hugmynd, þar sem það hefði í för með sér að hans heimabyggð yrði skorin frá alfaraleið. Annars fannst honum það bara sniðug hugmynd að leggja vegin um Kjöl þó að það skæri Blönduós miklu meira og afgerandi frá tengingu við norður - suðurland.
Síða sá ég að byrjað var að þvera Skagafjörð, vegurinn tekinn fyrir sunnan Varmahlíð og þver yfir Skagafjarðarsveitir er önnur stytting um töluverðan veg. Þar eru strax komnar tvær veigamiklar styttingar.
Ef maður fer svo að velta vöngum yfir þeirri hugmynd að leggja þennan Kjalveg í einkaframkvæmd og að þeir sem um vegin fari borgi veggjald. Við skulum aðeins bera þessar framkvæmdir saman við Hvalfjarðargöngin.
Þegar farið er fyrir hvalfjörð hefur maður tvo valkosti. Annars vegar göng og hinsvegar skemmtilega útsýnisferð um Hvalfjörð. Aðra leiðina borgar maður fyrir og fær ekkert útsýni hina ekki og fær að njóta landsins.
Ef vegur um Kjöl verður lagður í einkaframkvæmd, hefur maður val um núverandi veg um vestur- norðurland eða fara um Kjöl og borga fyrir.
En ef maður ætlar nú bara upp í Kerlingafjöll eða upp að Hveravöllum þarf maður alt í ein að fara að borga fyrir að njóta landsins sem hingað til hefur verið "frítt". Með veg í einkaframkvæmd væri kominn nokkurskonar kvóti á buddu okkar landsmanna við að njóta fegurðar landsins og náttúrugæða. Þá hefur maður alt í einu ekkert val.
Síðan er þetta með færð á vetrum. Þeir sem standa fyrir þessari hugmynd, segja að veðurfar sé að breytast svo mikið að ekki verði vandræði að halda þessari leið opinni. Í dag eru tveir fjallvegir milli Akureyrar og Reykjavíkur og eru þeir hvorugur langur en sýnist mér það ganga nógu stirðlega að halda þeim færum um vetrartímann, hvað þá með veg sem liggur yfir rigningamesta svæði landsins og er leiðin milli Gullfoss og Blönduhlíðar um 200 km. Reyndar er talað um að þessi vegur fari niður í Skagafjörð en það styttir leiðina þvert yfir landið ekkert.
Svo er þetta vandamál með þá sem borga veggjald og lenda í óhappið eða villum vega. Í göngunum í Hvalfirði þá kemur mjög fljótlega bíll frá fyrirtækinu Speli og hjálpar svo lengi sem það er gerlegt eða þeir eru fljótir að loka göngunum fyrir umferð af sömu ástæðum og kalla til aðstoð. En hvernig skyldi þetta verða á á Kili. Skildu framkvæmdaraðilar þar fara og leita eða bregðast við og veita aðstoð þeim sem lenda óhappi eða villum?
Þetta eru nokkur atriði varðandi Kjalveg. Mín niðurstaða út frá þessu er að ekki þarf að leggja nýjan veg um 150-200 km. langan til að stytta um 50 km. þegar hægt er að gera núverandi veg töluvert styttri með mun minni tilkostnaði. Er þá alveg eftir að fara út í umhverfisáhrif sem af þessum hugsanlega nýja vegi yrðu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2007 | 21:58
Sindaaflausn. Nýtt tískuorð.
Villtu grænan, heyrist nú í hvert skipti sem maður opnar útvarpið. Ef maður skildi svo svara : Nei takk. Þá er maður orðin púkó.Þetta er auglýsing frá bílainnflytjanda, þar sem hann er að auglýsa bílana sína og hvað allir geta verið góðir sem aka á bílum frá honum. Það verður búið að borga fyrir þá sinaaflausn í heilt ár ef þeir kaupabílinn frá honum.
Nú á að vera allt í lagi að keyra eins mikið og hægt er bara ef maður borgar í kolefnasjóð áður en maður leggur að stað. Honum Lúter gamla hefði ugglaust þótt þetta þunnur þrettándi, að geta borgað fyrir syndir sínar svona áður en maður syndgar. Á hans tíð var þetta að borga eftirá, og þótti honum nóg um.
Þessi kolviðar hugmynd er alveg ágæt, en við verðum að muna að þetta er bara bráðarbyggðarlausn en engar varanlegar bætur. Við þurfum líka að minka útblástur frá bílum, verksmiðjum og skipum. Það verður ekki nóg að rækta bara tré, við verðum lík að sína það þor og dug a minka mengunarvalda
Eftir að þetta fór að klingja í eyrum hefur maður það á tilfinningunni að það sem búið er að gróðursetja sé bara ómark vegna þess að maður hefur ekki borgað fyrir það í kolefnissjóðinn. Bara keypt plöntur hjá skógræktinni eða á öðrum stöðum sem höndla með tré og farið og komið þessu í jörð láði og sál til bóta. Við höfum enn töluvert að gjalda fyrir skógareiðingu undanfarinna árhundruða áður en við erum búin að bæta skaða landsins bara fyrir forfeður okkar.
Ég er engan vegi á móti þessari aðferð, að kolefnisjafna, en við megum bara ekki gleyma því að meira þarf en þetta til að draga úr gróðurhúsaáhrifum. Þessi aðferð getur í mesta lagi haldið í við kolefnismengunina, en ekki minkað hana. Meiri aðgerðir þarf til til að koma okkur aftur á réttan kjöl í þessum málum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 20:36
Garðabær og skipulag
Það var að detta inn um lúguna hjá mér skipulagskort af svefnbænum mínum, Garðabæ. Það er loftmynd, sennilega tekin fyrir 2005. Þar vantar allavega inná myndir af aðal skipulagsslysi höfuðborgarsvæðisins, Kaupstað. Eins og það var kynnt fyrir íbúum hér í upphafi átti þetta að lýsa svona litlum verslunarkjarna. Menn áttu að hafa tilfinningu fyrir því að þetta væri lítið og huggulegt!!
Ég brá mér um daginn upp á Urriðaholt til að líta þetta frábæra útsýni sem á að selja lóðir fyrir litlar 60 millur. Þaðan sá maður yfir sjóinn og húsþökin á húsunum í fjarska. En það sem var með mestu nærveru þegar staðið er uppi á holtinu er þessi "litli og sæti Kaupstaður". Guðirnir fyrirgefi þeim sem fann upp þetta nafn fyrir svæðið.
En það var nú ekki aðallega þetta sem ég ætlaði að fjalla um, heldur þá æpandi fjarveru allra tenginga Garðabæjar við nágrannasveitafélög sín. Jú, það er hægt að komast akandi á milli þessara byggðarkjarna, en ef maður er svo skini skroppinn að ætla að hjóla eða ganga, finnast eins og er aðeins 2, tveir, göngustígar á milli. Annar þeirra er yfir í Kópavog frá Arnarneshæð og yfir Kópavogslækinn að vestan verðu við brúna. Hinn er í gegnum iðnaðarhverfi Garðabæjar, á því svæði þar sem Marel er. Að öðru leiti verður maður að fara upp í Heiðmörk til að komast á milli til að verða ekki keyrður niður af ört vaxandi bílaumferð. Bærinn er ágætlega skipulagður göngustígum innan bæjarmarkana. En það er þessi skortur á stígum á milli þéttbíla sem er stórmerkilegur. +
Nú fer virkilega að verða þörf fyrir tengingar á milli þar sem strætisvagnaferðir um höfuðborgarsvæðið eru orðnar svo strjálar að maður er fljótari að hjól eða ganga en að bíða eftir næsta vagni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2007 | 17:13
Enginn sjálfstæðismaður með sjálfstæða skoðun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2007 | 16:52
Sjálfstæðismaður með sjálfstæðar skoðanir!
Það er gott að sjá að eitthvað virðist vera að rofa til hjá sumum sjálfstæðismönnum. Við skulum bara vona að þegar hægt verður að auka aflaheimildir að það verði ekki of seint fyrir þessar strjálu byggðir landsins.
Þetta er allavega gott innlegg í kvótamálin og hefðu ætt að vera löngu komin fram.
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2007 | 10:56
Loksinns, loksinns
Það er ekki oft sem maður sér að sjómaður, og hvað þá skipstjóri, þori að gagnrýna veiðiásókn okkar Íslendinga. Ég held að það sé löngu orðið tímabært að hlusta á það sem fiskifræðingar hafa að segja og fara eftir því.
Mér hefur alltaf þótt það nokkuð undarleg ráðstöfun þegar verið er að friða þorskinn og á sama tíma aukinn ásókn í fæðu hans.
Nú er ég hvorki fiskigæðingur né leikmaðkur á þessu sviði, ég bara borða fisk og finnst hann góður, og finnist það alveg voðalegt ef maður fengi hann ekki lengur á diskinn.
Við gerum okkur öll grein fyrir því að ef við fáum ekki almennilega fæðu þá stoppar þroski okkar. En það finnst öllum sjálfsagt að drepa loðnuna í stórum stíl og kvarta undan því að þorskurinn sé orðinn smár og horaður og farinn að éta seiðin undan sjálfum sér. Ég hefði álitið að þá sæi hver heilvita maður að þá væri eitthvað orðið skrítið með kjörfæðu fisksins, en ekki að það væri svona margir fiskar í sjónum að þeir væru hættir að rúmast þar.
Við skulum mynnast þess að veiðimannaeðli okkar Íslendinga er ansi mikið. Við tökum svo lengi sem eitthvað finnst. Þetta höfum við gert í mörg ár og þessi hugsunarháttur fylgir okkur ansi víða. Í viðskiptum er þetta farið að verða aðalsmerki útrásar okkar. Íslendingar sjá tækifæri og hella sér í það meðan aðrir standa á hliðarlínunni og bíða átekta, missa af og hneykslast á þessari bíræfni okkar.
Ég mynnist þess stundum þegar faðir minn var að hneykslast á "þessum" fiskifræðingum. "Þeir væru alltaf að leita að fiskinum annarstaðar en þar sem fiskurinn væri". Þetta er maður að heyra enn þann daga í dag. En það er kannski ástæða fyrir því að þeir eru þar, maður leitar ekki að því sem maður veit hvar er. Það getur maður mælt og farið svo að leita af því sem einnig á að vera til.
![]() |
"Stórmerkilegt að við skulum ekki vera búnir að eyða þorskinum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.5.2007 | 21:18
Gefið blóð !!!
Ég átti erindi í blóðbankann í dag. Á þangað erindi reyndar á 6 vikna fresti til að láta pumpa úr mér. Ekki halda að ég sé með svo ótrúlega blóðframleiðslu. Ég er settu í sérstaka blóðskiljuvél og þar eru teknar frá blóðflögurnar, og ég fæ næstum allt blóði til baka aftur. Þess vegna svona stutt á milli gjafa. Þetta tekur reyndar um 2 tíma í hvert skipti. En er ekki bara alveg ágætt að liggja og láta stjana svolítið í kringum sig, færa sér kaffi og með því og blöðin og fá sæmilegan tíma til að lesa þau.
Þær sögðu mér, þessar elskur þarna niðurfrá, að ég væri að koma í 64 skipti í þessa vél. Það tekur um tvo tíma í hert skipti svo þetta eru einir 124 tímar hjá mér. Ég er búinn að liggja þarna hjá þeim á bekknum í rúmar þrjár vinnuvikur á síðustu 10 árum. Haldið þið að það sé ekki munur að vera búinn að láta stjana við sig í rúmar þrjár vikur. Þetta er eins og besta sumarfrí
Núna loksins er Blóðbankinn kominn í rúmbetra húsnæði og þá er það þannig að hægt er að taka á móti fleiri blóðgjöfum. Auk þess var mér tjáð að það stæði til að bæta við tækjakosti til að geta sinnt fleiri gjöfum. Mæli ég með að sem allflestir, það ætti eiginlega að vera skilda, fullsfrískir einstaklingar mæti reglulega í Bankann og leggi inn. Við skulum hafa það hugfast að það gæti svo farið að við sjálf þyrftum á þessu blóði að halda og þá væri nú ekki ónýtt að eiga fyrninga í blóðbankanum.
Allar frekari upplýsingar er hægt að fá á þessum tengli http://svali.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/htmlpages/blodbankinn.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Brynjar Hólm Bjarnason
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugamál
- Veisla fyrir bátaáhugamenn Kystnorge på sit beste
- BB 11 Norsk tréskúta
- Siglingar Siglingablað
- Bátar Tímarit um trébáta
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar