Færsluflokkur: Bloggar
11.4.2007 | 19:00
Gera það að valkosti að geta farið á egin bíl í vinnuna
Ég mynnist þess stundum með sjálfum mér að fyrir síðustu sveitastjórnakosningar var mikið talað um almenningssamgöngur og þar kom t.d. fram sú hugmynd að gefa ellilífeyrisþegum og skólafólki frítt í strætó. Það hefur ekki mikið orðið af þeim efndum. Þeir sem komu með þessa hukmynd hafa bar hækað fargjöldin.
Eftir að gamli góði Villi, eins og hann kallaði sig sjálfur, tók við borgarstjóraliklinum var hann spurður um þessi loforð af blaðamanni RÚV og svaraði hann þá með þessari gullvægu setningu að hann vildi "Gera það að valkosti að geta farið á egin bíl í vinnuna". Þetta gladdi mitt strætóhjarta verulega og varð mér þá hugsað til þess að til að hafa valkost þá þarf maður að hafa eithvað annað sem maður getur hafnað. Það þíðir þá aðeins eitt. Gamli góði Villi hlítur þá að ætla að fara að láta byggja út strætisvagnakerfið svo að þeir sem ekki vilja nota það hafi einhvern valkost. Fram að þessu hafa borgarar höfuðborgarsvæðisinns verið neiddir til að nota einkabílinn til og frá vinnu.
Það er eginlega leitt til þess að vita að hugmyndin að gefa frítt í strætó sem svo mikið var rædd á Stór-Reykjavíkursvæðinu skuli hafa verið stolið af Akureyringum og þeir orðið fyrstir til að gefa almenningssamgöngur á sínu svæði fríar og uppskorið, liggur mér við að segja, troðning í vagnana.
Þar hefur farþegum fjölgað um, ef ég man rétt, 60% frá áramótum.
Hefur nokkur hugsað útí hvað það er þjóðhagslega hagkvæmt að gera almenningssamgöngur innan höfuðborgarsvæðisinns fríar svo að fleirri gætu farið að nota þær. Þá þyrfti hugsanlega að fjölga vögnum og kanski hafa stittra á milli vagna á hverri leið. Hljómar eins og meiri kostnaður. Vissulega, en á móti kæmi að eldsneiti sparaðist ef færri gætu lostnað við að þurfa að keira í og frá vinnu. Það yrði minna dekkjaslit sem leiddi af sér færri innflutt dekk. Götur slitnuðu minna sem leiddi af sér minni malbiksvinnu og minna svifrik í lofti. Það yrðu færri umferðarslis ef fólk hefði það sem valkost að geta notað strætó s.s. færri sjúkrahúslegur færri dauðaslis í þéttbíli og það þyrfti hugsanlega minna að byggja út vegi og stækka þá sem fyrir eru. Kanski þyrfti þá ekki að byggja eins mikið af ljótum mishepmuðum mislægum gatnamótum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2007 | 16:34
Þórólfur Árnason 50 ára, af hverju ekki sem næsta forseta Íslands
Ég vil óska Þórólfi Árnasyni til hamingju með afmælið sem hann átti hér um daginn og sem hann gat haldið upp á án þess að bjóða Eton John til sín. Mér var raunar sagt að þar hafi verið ýmsir framámenn þjóðarinnar og vona ég bara að þetta hafi verið ánægulegt hóf fyrir hann og gesti.
En það var nú raunar annað sem ég ætlaði að mynnast á hér í þessu samhengi. Það losnar embætti forseta Ísland núna á næsta ári eða eftir 5 ár og þá legg ég til að þórólfur Árnaso gefi kost á sér í það verkefni. þegar hann var borgarstjóri Reykjavíkur stóð hann sig með miklum ágætum þó hann hafi þurft að gjalda þess að vera einn af "ósakhæfu" mönnunum sem voru í olíusamráðsmálinu, eini maðurinn sem þurfti að taka út refsingu fyrir sína ósakhæfu bláeygu yfirmenn.
Þórólf Árnason sem næsta forseta líðveldisinns.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2007 | 17:49
Feneyjar norðursinns
![]() |
Brimvarnargarður við Ánanaust rofnaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2007 | 16:47
Ísland sem friðarsetur
Það er mikið búið að tala um varnir íslands síða herin fór af landinu, og engum dettur neitt í hug nema að fá samsarf við aðrar þjóðir um að verja þennan hólma okkar langt norður í Dumshafi.
Nú síðast var haft samband við norðmenn um að aðstoða okkur við þetta. Ég held að það sé alt í lagi að mynnast þess að þeir eru búnir að gera ýtrekaða tilraun í gegnum árin að ná yfirráðum yfir landinu.
Í morgun var fjallað um það í fréttum að Svíum fanst við bregðast rétt við varðandi varnir landsin.
Ég ætla hér aðeins að hreifa einni hugmynd sem vel væri hægt að nýta sér varðandi varnarlausa eyju í hafinu.
Það væri vel hugsanlegt að þjóðir heimsinns væru tilbúnar að samþikkja það að einhverstaðar væri til staður þar sem hægt væri að koma saman á einangruðum friðarstað sem laus væri við hagsmuni hervelda og ræða eða semja friðaráætlanir. Þá þirftu allir að samþikkja það að þeir sem þangað færu í friðartilgangi væru friðhelgir á sama hátt og var hér á landi þegar farið var til þings á Þingvöllum. Þinghelgin var frá því að lagt var af stað að heiman og til þess að menn komu heim aftur.
Síðan þirfti að semja við þjóðir sem næstar okkur væru um að tryggja það að einginn kæmi inn fyrir okkar lögsögu með vopn né ófriði. Þar með væru varnir landsinn tryggðar.
Síðan sæju Sameinuðu Þjóðirnar um friðar- og friðarransókna-setur hér.
Ef enhverju slíku væri komið á værum við orðin eins og vin í heiminum án herafla og triggðum öllum að við mindum alldrei lísa yfir stríði við aðrar þjóðir ein og verið hefur fram undir Írakstríðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Brynjar Hólm Bjarnason
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugamál
- Veisla fyrir bátaáhugamenn Kystnorge på sit beste
- BB 11 Norsk tréskúta
- Siglingar Siglingablað
- Bátar Tímarit um trébáta
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar