Fjórir hornsteinar.

Það eru fjórir hornsteinar sem samfélagið þarf sérstaklega að gæta að sé sinnt sómasamlega og það eru: Menntun, samgöngur, heilbrigðismál og löggæsla.

Og hvernig standa stjórnvöld sig þar?


mbl.is Kraftaverkin þurfa að bíða vegna manneklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þessi hús á Akranesi.

Þau hljóta að vera vitlaust staðsett. Þetta er annað húsið á tiltölulega stuttum tíma, sem keyrt er á.
mbl.is Keyrði á hús á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru svo...

margir búnir að leggja skóna á hilluna. Fer þessi hilla ekki að verða full?
mbl.is Tore Andre Flo leggur skóna á hilluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægufrétt

Hér kemur framhald á blogginu frá 09.03

Það var hringt í hann son minn það sem hann var að hengja upp auglýsingar í Hafnarfirði um pokann sem hann tíndiþ   Í símanum var erlend stúlka og sagðist hún vera með poka sem væri merktur honum.

Og haldið þið ekki að strákurinn hafi verið glaður og brennt inn í Kópavog þar sem þessi stúlka býr með peninga í fundarlaun. Stúlkan harðneitaði að taka við fundarlaunum, svo að strákur fór í næstu blómabúð og keypti vasa og fyllti hann af blómum og sendi henni ásamt þakklætiskorti.

Var einhver að segja að útlendingar væru bara þjófar og illþýði. Nei flestir þeirra eru nefnilega strangheiðarlegir og góð viðbót við þjóðfélag okkar.

Kærar þakkir fyrir skilvísina.


Bara stútar ?

Hvar eru stúturnar. Þetta er ótrúlega kynbundið. Á tímum þegar allt á að vera tvíkynjað, þá er það réttlætismál að konur séu líka kyngreindar undir stútur.
mbl.is Sextán stútar um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SLYS!

Það var nú aldrei meiningin að nota þessa bloggsíðu til að koma á framfæri einkamálum. En engin veit fyrr en ævin er öll. Það slys varð hjá syni mínum í gær að skilja eftir bakpokann sinn í strætó leið 33 í Hafnarfirði. Þetta gerðist í gærkvöld þann 8 mars um kl. 2100.

Í bakpokanum var eftirfarandi:

Bakpoki:          STM – Large Loop 17“

Fartölva:          MacBook Pro 15“  - 2.4 GHz, 2Gb RAMÍ svartri Crumpler Tösku

Heyrnatól:       Sennheisir HD 25-1 II

Teikniborð:      Wacom Bamboo Fun A6 (Svart)

Myndavél:       Olympus Mju 750 (?) 

Flakkarar:        LaCie  Rugged All-Terrain 160 GbG-Drive250 Gb USB/Firewire 400 

Mikrófónn:      Shure SM57                              

 LeathermanWAVE

Skólagögn:Pennaveski (Brúnt Rússkinn – Mikið Krotað á)HarðspjaldamappaEfnafræði - 2. Hefti eftir Sigurgeir og Sigríði Theodórsdóttur

Annað:USB Lykill (hvítur 64mb)LyklakippaAuðkennislykillHleðslutæki fyrir MacBook ProSpennubreytir fyrir Flakkara (G-Drive)Hleðslutæki fyrir Nokia SímaHleðslutæki fyrir Olympus MyndavélHengilásSvört leðurtaska undir Fjöldan af snúrum + 256 mb Minniskubb í Myndavél

Þeir sem geta látið í einhverjar upplýsingar af höndum eru beðnir að hafa samband í síma:          846 7876

Að sjálfsögðu eru inni á tölvunni ómetanleg vinna og upplýsingar fyrir eigandann. Til að mynda eru skólagögn og glósur, tónlyst sem hann hefur verið að semja, myndir og margt fleira. Þar má nefna myndir frá Kenyjaferð sem fjölskyldan fór í fyrir rúmum tveimur árum, sem hann var að raða upp og tengja við t.d. Googul eart fyrir okkur . Sem betur fer ekki eina settið af myndunum , en eina settið af þessari vinnu hans.

Nú heiti ég á ykkur bloggheim til hjálpar um að koma þessum upplýsingum áfram til fleiri og að vonandi beri það árangur

Hér er frekari lýsing á pokanum.

 http://visir.is/article/20080309/FRETTIR01/80309042

Með fyrirfram þökk

Brynjar H. Bjarnason


Helgi Hóseasson

Ég var á ferðinni á Langholtsveginum í gær. Var beðinn um að hitta þar manneskju sem bíða myndi fyrir utan verslunina Beco sem er staðset í gamla apótekinu þar. Áhorninu á móti stóð Helgi Hóseasson ein og svo oft áður. Mig hefur oft langað að gefa mig fram við hann. Pabbi og hann voru félagar fyrir margt löngu og voru t.d. saman í verkfallsvörslu up´p í Hvalfirði í langaverkfallinu svo kallaða 1955.

En Helgi bað mig fyrir tvær vísur sem hann hafði ort og hvort ég gæti ekki komið þeim á framfærifyrir sig. Ég lofaði því fyrir hann og sagðist myndu setja þær á netið svo sem flestirIMGP5277_edited gætu lesið þær, og var hann nokkuð sáttur við það. En Helgi er enn að berjast við það sem hann hefur alla tíð verið á mótmæla og það er skírnin. Hann er enn að reyna að fá það til að afskýrast, nokkuð sem var framkvæmt á honum að honum forspurðum. Ef einhver er að tala um mannréttindi þá er þetta eitt af því, að fá að  leggja sitt álit til þess sem á að framkvæma á manni sjálfum. Þó að ferming sé til að staðfesta skírnina, verður skírnin ekki tekin af manni ef maður lætur ekki fermast.

En vísur Helga eru svohljóðandi og fjalla um hans hugðarefni.

 

Brennið þið kirkjur, oní svarta sand,

saman við mold og leir á klöpp;

Landsfeðra draugsa, hórdólga, Helgan anda,

hengið þið Krosslaf upp á löppunum.

 

Seinni vísan er svohljóðandi:

 

Krosslafs hræ við láð varð laust,

ljótt með kauna aman,

til Himna, líkt og skugga skaust

með skít og öllu saman.

 

Sjálfsagt eiga vísurnar eftir að stuða einhvern, en það hefur Helgi gert alla sína tíð, en við skulum mynnast þess að þetta lítilræði sem hann hefur farið fram á hefur enginn viljað ljá máls á, og ekki hefur kirkjan viljað hlusta á hann á nokkurn hátt.

 


Bærinn sem best er að búa í!

Já, það er ekki bara Kópavogur sem gott er að búa í.  Miða við einhverja könnun sem gerð var og birt nýlega, átti að vera best að búa í Garðabæ.  Eins og komið hefur fram hér í fyrri færslum hjá mér, þá bí ég þar.

Í þessum góða bæ er ekki gert ráð fyrir að neinn komi sér á milli staða nema í einkabíl, og það á ekki að vera einkenni á bæ sem á að vera gott að búa í.  Einkabíllinn er settur þar í fyrsta og annað sæti sem framgangsmiðill.

Á veturna þegar snjóar eru allar aðal götur ruddar og einnig allar aðal gangstéttar bæjarins. Ekki allar frekar en götur. En ef  það snjóar aftur án þess að hláni er ekkert frekar ruddar gangbrautir en vegir eru ruddir áfram.

Hinumegin við Arnarnesveg leynist Kópavogur og þar sem ég bý á þeirri hæð nota ég mér þann valkost að taka strætó í vinni í Kópavogi. Þegar ég kem yfir veginn sem skilur á milli þessara tveggja bæja bregður svo við að þar eru gangstéttar ruddar reglulega og alltaf greiðfært um þær.

Reykjavík, Kópavogur og Hafnafjörður fóru síðasta vor og sumar í keppni um hver væri viljugastur að bjóða best í strætó og við þetta fylgdi Garðabær með, eitt ríkasta sveitarfélag landsins. Núna um daginn brá svo við að keppnin er aðeins að taka við sér aftur um það hver er viljugastur að fara að gefa fleirrum frítt í strætó. Þá brá svo við að frá bæjarstjórn Garðabæjar kom hljóð úr horni um að þeir væru nú bara ekkert til í að gefa frekar frítt í svona (óþarfa) sem strætó væri. Þeir vita sem er að garðbæingar eru svo vel staddir að þeir geta vel borgað sínar strætóferðir sjálfir.

Ég hitti enu sinni fyrir einn bæjarráðsmann í Garðabæ og hafði sá mikil og stór orð um hvað það væri dýrt að reka strætó og mikill hluti tekna bæjarins sem færu í það.  

En að borga bílastæði og hreinsun þeirra það eru þeir viljugir að borga. Það væri fróðlegt að sjá hver munurinn á rekstri almenningssamgangna með strætó væri miðað við þann kostnað að halda bílastæðum bæjarins nothæfum á ári og snjófríum á vertum.

Það er eitt aðal iðnaðarhverfi sem hægt er að kalla svo í Garðabæ og er það aðskilið frá annarri byggð með hrauni og þangað liggur ein gönguleið frá íbúahverfinu, en það er alveg með ólíkindum hvað það getur verið erfitt að nýta sér þá leið á vetrum vegna þess að þar er ekkert  eða sára lítið hreinsaður snjór eftir ofankomu. Það er frekar beðið eftir hláku.

Bæjarstjórn Garðabæjar má alveg fara að líta til þess að í Garðabæ býr líka fólk sem vill spara umhverfið og nýta sér aðra möguleika til að komast fram í umferðinni en einkabílinn.

 


Samviska

Það er alltaf gott þegar samviskan fer að segja til sín á jákvæðan hátt. Það mættu fleiri taka sér hann Costa til fyrirmyndar.
mbl.is Tilræðismaður gaf sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tillitsemi...

á að vera á báða bóga. Ekki bara þannig að við tökum tillit til þeirra sem koma, heldur líka að þeir sem koma sýni þeim tillit sem eru fyrir og þeir fái að vera með það sem þeir voru með fyrir.
mbl.is Sótt að gríslingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víða vetrarfæri!

Ég kann ágætlega við að það sé sumarfæri á sumrin og vetrarfæri á vetrum
mbl.is Víða vetrarfærð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seinagangur stjórnsýlunnar

Það er raunar skrítið að ekki skuli vera búið að gefa út línu innan stjórnsýslunnar um að stefna að því að allir bílar skuli vera eins vistvænir og kostur er á hverjum tíma.

Stjórnsýslan verður að fara að vakna til lífsins og gera raunhæfa hluti fyrir náttúruna þar sem það sést og ganga á undan með góðu fordæmi. Það væri t.d. hægt að hækka laun þeirra sem koma í strætó um sem svarar kostnaði við það bílastæði sem þeir spara við að láta bílinn standa heima. það væri hægt að gera margt fleira en það.


mbl.is Auðvelt að fjölga visthæfum bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamli góði Villi og ákvörðunarfælnin.

það væri nú gaman að skyggnast inn í hugarfylgsnin hans gamla "góða" Villa og sjá hvað hann sé að hugsa.

Það skrítnasta sem hann hefur sagt undafarna daga er það að hann segist vera búinn að axla ábyrgð með því að fara frá sem borgarstjóri. þegar hann sagði þetta, þá datt mér í hug allir valdhafar sem steypt hefur verið af stóli og svo á eftir er verið að draga þá fyrir dóm og dæma þá fyrir spillingu í starfi og afglöp. Eru þeir ekki búnir að sína ábyrgð með því að láta steypa sér af stóli?

Hvernig var það með gamli "góði"Villa, sagði hann ekki að Þórólfur Árnason væri maður að meiri með því að hætta sem borgarstjóri á sínum tíma. Þó hafði hans fyrra star ekkert með borgarbúa að gera sem hann var að taka út ábyrgð fyrir.

Núna heldur ´gamli "góði" Villi borginni í herkví vegna ákvörðunarfælni sinnar. Það er ekki gott að þurfa að taka ákvörðun um að segja sig frá völdum. En sá sem ekki getur tekið ákvörðun um eygin málefni á ekki að hafa vald til að taka ákvörðun fyrir aðra.

VILLI! BORGARBÚAR BÍÐA EFTIR ÁKVÖRÐUN FRÁ ÞÉR SVO AÐ MÁLEFNI BORGARINNAR FARIN AÐ KOMAST Í FYRSTA SÆTI AFTUR.


mbl.is Vilhjálmur geri upp hug sinn í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamall repúblikani

Var ekki einhver sem sagði að Repúblikar þyrftu ekki annað en að dubba upp gamlan kall til að vinna blökkumann eða konu. Þetta er kannski að rætast.
mbl.is McCain kallar eftir stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að stytta sér leið

Það eru ýmsar styttingaleiðir til í íslensku máli. Annað slagið rekst maður þó á alveg undarlegustu styttingaleiðir. Í frétt Mbl.is um Reyðarfjarðar smyglið kemur ein þessara styttinga sem er ansi merkileg. Er það orðið: Handlagði.

Maður gæti haldið að prestar hafi eitthvað verið þarna með í ráðum. Þeir eru með svona handlagningar, eða heilarar. Þeir gera þetta víst líka.

En hér kemur byrjunin á fréttinni úr Mbl.is

Einn hinna ákærðu í Pólstjörnumálinu svonefnda bar við yfirheyrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hafa verið beðinn um að „græja“ innflutning á miklu magni fíkniefna í sumar, en upp komst um málið og haldlagði lögregla efnin um borð í skútu á Fáskrúðsfirði í september. Sex eru ákærðir.

Þá kemur í ljós að það er lögreglan hér á landi sem er farin að "handleggja" og er þetta sjálfsagt einhver aukabúgrein hjá þeim, nema að þeir séu kannski orðnir svona handleggjalangir að það sé eins og þeir "handleggi".

 


Samningar með evrumynt!

Það verður gaman fyrir launafólk þegar kemur að samningum og evran verður orðin alls ráðandi. það er ekki eins víst að takist að semja þegar verðviðmiðið verður það sama hér og í Portúgal, Spáni eða Ítalíu. Það vilja allir hafa verðlagið miðað við þessa staði, en bakhliðin á myntinni gæti verið lægri laun.

Ekki spennandi það.


mbl.is Krónan að verða viðskiptahindrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagar hinna löngu hnífa.

Hvers eiga Reykvíkingar að gjalda að heilt kjörtímabil fari til spillis í valdasjúka stjórnmálamenn. Ekki nóg með að þriðja borgastjórnin sé mynduð á tveimur árum, heldur loga þessir smáflokkar ó innbyrðis illdeilum..

Framsókn með sinn eina mann í borgarstjórn getur ekki setið á sátts höfði og F-listin virðist vera með fyrsta mann í borgarstjórn og restina fyrir utan. Sjálfstæðismenn í miklum innbyrðis deilum. Kannski það lagist hjá þeim, núna þegar Villi er búinn að koma þeim í valdastólana aftur.

þetta á eftir að kosta borgarbúa ómæld vandræði það sem eftir er kjörtímabils.

Nú virðast ætla að fara 4ár í algera vitleysi, ár sem virkilega þurfa á að samstaða náist þegar kemur t.d. að samningum við borgarstarfsmenn.


Vopnin að snúast í höndum Rússa!

Sirinofskí þingmaður hafði hugmyndir um að semja við okkur íslendinga um að taka á móti öllum afbrotamönnum til Íslands. En núna eru þeir farnir að taka á móti óstýrilátum einstaklingum annarstaðar frá.

Hvað verður það næst


mbl.is Unglingur sendur í betrunarvist til Síberíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afgangsorka?

Það er nokkuð alvarlegt að vera að að selja orku til stórra kaupenda og geta ekki tekið við neinum áföllum. Ef eitthvað skeður er allt í volli.

Ætli það sé ekki vitlegra að tryggja orku til þeirra kaupenda sem þegar eru á markaðnum heldur en að reyna að auka kaupendafjöldann.


mbl.is Aflstöðin alveg óvirk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Brynjar Hólm Bjarnason

Höfundur

Brynjar Hólm Bjarnason
Brynjar Hólm Bjarnason
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • 22 júní 2008
  • Tövrafoss

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 851

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband